Glælogn – hlaðvarp um norræn fræði
Fyrir alla sem þyrstir í fróðleik um bókmenntir, sögu og menningu Norðurlandanna. Fræðimennirnir Hjalti Snær Ægisson og Teresa Dröfn Njarðvík veita innsýn í menningarheim miðalda og spjalla um nýleg, fræðileg skrif. Handritagrúskarar af ýmsu tagi segja frá rannsóknum sínum. Hlaðvarpið er á vegum Árnastofnunar. Tónlist: TSS: „Drums of Congo“.
Listen on:
Episodes

7 days ago
7 days ago
51 min
Bókin sem rætt er um í þættinum:
Ármann Jakobsson, Minor Characters in Icelandic Sagas: A Narratological Study. Palmgrave Macmillan, 2025.

Oct 21, 2026
Oct 21, 2026
28 min
Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar.
Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólaf Helga Haraldsson. Á milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök trúarkvæði og tengd konungunum tveimur, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð.
Í þessum þætti fengum við Guðrúnu Nordal forstöðumann Árnastofnunar til að segja okkur frá Bergsbók – sögunum, kvæðunum og konungunum tveimur sem þar eru í forgrunni.

Oct 14, 2026
Oct 14, 2026
23 min
Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum.
Í þessum þætti er rætt við Hauk Þorgeirsson handritafræðing um þennan merka grip.

May 27, 2026
May 27, 2026
1 hr 2 min
Bókin sem rætt er um í þættinum:
Olof Sundquist. The Demise of Norse Religion: Dismantling and Defending the Old Order in Viking Age Scandinavia (De Gruyter, 2024).

May 20, 2026
May 20, 2026
21 min
Síðari hluti sautjándu aldarinnar er stórveldistími í sögu Svíþjóðar. Pólitísk og hernaðarleg ítök sænska konungsríkisins voru gríðarleg umhverfis Eystrasaltið, en slíku valdi fylgir sterk þörf fyrir skilning og hagfelldar túlkanir á eigin fortíð.
Í þessum þætti er rætt við Margréti Eggertsdóttur, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, um íslenska handritasafnara í Svíþjóð.

May 13, 2026
May 13, 2026
59 min
Bókin sem rætt er um í þættinum:
Margaret Clunies Ross: Skaldic Poetry as Christian Progaganda (Boydell & Brewer, 2026).

May 6, 2026
May 6, 2026
20 min
Manneskjur höfðu sömu tilfinningar á miðöldum og þær hafa í nútímanum, en sá orðaforði sem við notum til að lýsa tilfinningum hefur tekið miklum breytingum í aldanna rás. Í þætti dagsins er rætt við Sif Ríkharðsdóttur bókmenntafræðing um tilfinningar í miðaldabókmenntum.

Apr 29, 2026
Apr 29, 2026
59 min
Greinar sem rætt er um í þættinum:
John McKinnell, “Useless Knowledge? The Paradox of Alvíssmál,” Saga-Book 41/2017, 79–96.
Frog, “Preserving Blunders in Eddic Poems: Formula Variations in Numbered Inventories of Vafþrúðnismál and Grímnismál,” Scripta Islandica 72/2021, 43–91.

Apr 22, 2026
Apr 22, 2026
1 hr 10 min
Greinar sem rætt er um í þættinum:
Martina Ceolin: “Endeavouring to Grasp the Elusive: A New Study of Finnboga saga ramma,” Gripla 2024, 279–307.
Basil Arnould Price: “Queer Indigenous Relationality in Finnboga saga ramma,” Speculum 2024:2, 381–408.

Apr 15, 2026
Apr 15, 2026
26 min
Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna.
Í hlaðvarpsþætti dagsins segir Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir okkur frá Mábilar rímum en hún hlaut nýlega viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku.


